Símsvörun

Fagleg símsvörunarþjónusta síðan 2019

Við hjá Svörum strax bjóðum fyrirtækjum upp á símsvörunarþjónustu af ýmsu tagi. Okkur þykir fátt skemmtilegra en að veita fyrsta flokks þjónustu og leggjum okkur fram við að kynnast þínu fyrirtæki vel, ásamt því að meta þarfir hvers og eins til þess að geta tengst viðskiptavinum á sem bestan hátt.

Að útvista símtölum sem berast yfir allan daginn minnkar álag á annarri starfsemi fyrirtækisins og skilar sér í hærra þjónustustigi þvert á fyrirtækið. Það er hagkvæmt að útvista símsvörun til Svörum strax, en hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hefur mikla reynslu af símsvörun og samskiptum við viðskiptavini.

Þjónustan byggir á öflugum símkerfum og samþættingu við CRM-kerfi, sem tryggir bæði öryggi og gagnsæi. Þú getur fylgst með öllum símtölum og þjónustu sem veitt er í þínu nafni. Við hugsum um þína viðskiptavini eins og okkar eigin og getum tengst ykkar upplýsingakerfum til að veita sem besta þjónustu.

Treyst af leiðandi fyrirtækjum

Rafal
Epal
ELKO
FlyOver Iceland
Icewear
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn
BM Vallá
Brimborg
MAX1
Vélaland

Við bjóðum upp á

Tímabókanir

Við tökum að okkur að bóka tíma, eða skrá þá niður og senda skýrslu í lok dags. Við viljum auðvelda ykkur dagleg störf með því að leysa mál í fyrstu snertingu.

Tölvupóstur

Við svörum fyrirspurnum sem berast á ykkar netföng í ykkar nafni. Uppsetningin er einföld og viðskiptavinir ykkar fá skjót og fagleg svör.

Samfélagsmiðlar

Við getum tekið að okkur að vakta og svara öllum skilaboðum og athugasemdum á samfélagsmiðlum eins og Facebook og Instagram..

Þinn þjónustufulltrúi

Við leysum flóknari verkefni í nánu samstarfi við þitt fyrirtæki. Starfsfólk okkar er reynslumikið og sérhæft og getur sinnt sérverkefnum eftir þörfum.

Þjónusta

Almenn símsvörun

Hentug lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja tryggja áreiðanlega og persónulega þjónustu við sína viðskiptavini.

  • Símsvörun á dagvinnutíma
  • Tímabókanir og móttaka skilaboða
  • Persónuleg þjónusta í þínu nafni
  • Yfirlit og samantektir úr símtölum

Þjónustuver

Heildarlausn fyrir fyrirtæki sem þurfa sérhæfða þjónustu og vilja að starfsfólk okkar verði hluti af þeirra teymi.

  • Sérhæft og þjálfað starfsfólk
  • Þekking á þínum vörum og þjónustu
  • Tengingar við þín upplýsingakerfi
  • Afgreiðsla flókinna erinda
  • Mælaborð með efnisgreiningu og yfirsýn

Þjónustupakkar

Girona

Frábær og þægileg lausn fyrir minni fyrirtæki og stofnanir með lítil umsvif. Eða einfaldlega þau sem að vilja fá aðstoð á álagstímum.

  • Símsvörun
  • 40 símtöl innifalin
  • Dagvinnutími
  • Tímabókanir
  • Rauntíma yfirsýn yfir öll símtöl

Bilbao

Vinsæll pakki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

  • Símsvörun
  • 100 símtöl innifalin
  • Dagvinnutími
  • Tímabókanir
  • Þjónustuver
  • Rauntíma yfirsýn yfir öll símtöl

Valencia

Einstaklega góð lausn fyrir flest fyrirtæki og stofnanir. Með Valencia einfaldar þú þinn rekstur!

  • Símsvörun
  • 300 símtöl innifalin
  • Dagvinnutími
  • Tímabókanir
  • Þjónustuver
  • Rauntíma yfirsýn yfir öll símtöl

Barcelona

Barcelona pakkinn er sérsniðinn að þörfum stærri fyrirtækja sem leggja áherslu á persónulega og faglega þjónustu við viðskiptavini sína.

  • Símsvörun
  • Ótakmörkuð símtöl
  • Tímabókanir
  • Sala
  • Vinnutími eftir samkomulagi
  • Tölvupóstur
  • Skiptiborð
  • Rauntíma mælaborð og AI greining
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi
  • Sérhæfður starfskraftur
  • Þjónustuver

Algengar spurningar

Hvernig símsvörunarþjónustu bjóðið þið upp á?
Við bjóðum heildstæða símsvörun sem er sniðin að hverju fyrirtæki — allt frá almennri símsvörun og móttöku skilaboða yfir í sérhæft þjónustuver, tímabókanir og vöktun á tölvupósti og netspjalli. Þú getur líka bætt við gervigreindarfulltrúa sem svarar allan sólarhringinn. Við byrjum á að kynnast starfseminni þinni og setjum upp lausn sem passar þínum þörfum.
Hvernig fer uppsetningin fram?
Það er einfalt — við sjáum um uppsetninguna, kynnumst starfsemi þinni og stillum allt upp í kerfinu okkar. Svo beinast símtölin einfaldlega til okkar og við svörum eins og hluti af þínu teymi. Þjónustan getur verið komin í loftið með stuttum fyrirvara, svo þú getur einbeitt þér að þínum rekstri.
Get ég valið hvenær þið svarið fyrir mig?
Já, þú ræður því alveg. Við getum svarað á dagvinnutíma, tekið við þegar mikið er að gera, eða verið til staðar utan hefðbundins opnunartíma. Með gervigreindarfulltrúa er líka hægt að svara allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Svarið þið líka tölvupósti, netspjalli og samfélagsmiðlum?
Já. Við svörum tölvupósti í þínu nafni og vöktum samfélagsmiðla eins og Facebook og Instagram. Netspjallið á vefnum getur gervigreindarfulltrúi séð um allan sólarhringinn, með okkar fólki til taks þegar mál þarfnast mannlegrar snertingar. Þannig fá viðskiptavinir þínir skjót svör, sama hvar þeir hafa samband.
Svarið þið eins og hluti af fyrirtækinu mínu?
Já. Við svörum í þínu nafni, þekkjum starfsemina og getum tengst þínum kerfum til að veita nákvæm svör — eins og hluti af þínu teymi.
Fæ ég yfirsýn yfir símtölin og þjónustuna?
Já. Þú færð rauntíma yfirsýn yfir öll símtöl og sérð hvað viðskiptavinir spyrja helst um og hvernig erindi eru leyst — þannig sérð þú hvað gengur vel og hvar má bæta.

Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki

Við metum þarfir hvers fyrirtækis fyrir sig og gerum sérsniðið tilboð. Hafðu samband til að fá ókeypis mat á þínum þörfum.

Svörum strax

Öflugt þjónustuver í Barcelona með 35+ íslenskum starfsmönnum. Við samþættum mannlega þjónustu og gervigreind til að veita framúrskarandi upplifun fyrir þína viðskiptavini.

El MUNDO BUENO DE ISLANDIA, SOCIEDAD LIMITADA.

Fyrirtækið

Hafðu samband

© 2026 Svörum strax. Allur réttur áskilinn.

Svörum strax er stofnað og rekið í Barcelona á Spáni.

×
Hæ! Hvernig getum við aðstoðað?