Viltu koma bókhaldinu þínu í nútímalegra form?
Við sjáum um bókhaldið í nánu samráði við þig og nýtum nútímatækni til að skjala og varðveita reikninga og skjöl í skýinu. Þannig færðu skilvirka og örugga þjónustu sem sparar tíma og einfaldar daglega starfsemi.
Við tökum að okkur alla almenna bókhaldsþjónustu þar sem bókhaldið er fært í Uniconta bókhaldskerfi. Fjárhagskerfið veitir heildaryfirsýn yfir rekstur og efnahag og styður allar aðgerðir sem tengjast skýrslugerð og fjármálastjórnun.
Við stofnum og sendum út sölureikninga fyrir viðskiptavini okkar.
Við sendum virðisaukaskattsskýrslur í rafrænu formi til Skattsins og höldum sambandi við viðskiptavini um greiðslu á virðisaukaskattskröfum þegar það á við.
Við framkvæmum hinar ýmsu afstemmingar, þar á meðal banka-, viðskiptavina- og lánardrottnaafstemmingar, auk árslokaafstemminga á öllum liðum fjárhagsins.
Við sjáum um afstemmingar og ársreikningagerð og skilum afriti ársreiknings til fyrirtækjaskrár.
Við tökum að okkur framtalsgerð fyrir fyrirtæki og einstaklinga ásamt skilum á launa-, verktaka- og hlutafjármiðum. Framtali og ársreikningi er skilað til Skattsins á réttum tíma.
Grunnþjónusta fyrir dagleg bókhaldsverkefni
Ítarleg þjónusta fyrir flóknar bókhaldslegar þarfir

Viðskiptafræðingur, M.acc í reikningshaldi og endurskoðun
Jóel er með mastersgráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóli Íslands. Hann hefur unnið við bókhald, reikningsskil, ársreikninga, skattframtöl einstaklinga og félaga frá árinu 2007. Hann hefur meðal annars starfað í 6 ár hjá Deloitte. Fjármálastjóri RadissonBlu 1919 hótels 2013-2016. Samhliða námi og starfi kenndi hann við Háskóla Íslands og var í 6 ár prófgerðarmaður hjá Atvinnuvegaráðuneytinu fyrir viðurkenningar bókara.
svorumstrax@svorumstrax.isVið greinum þínar þarfir og setjum upp lausn sem einfaldar bókhaldið og sparar tíma.